Sumarbústaðareglur

posted in: Fréttir | 0

Við vonum að þú og þínir eigið ánægjulega dvöl í Helludal.

Vinsamlegast látið starfsmannfélagið vita ef eitthvað má betur fara í húsunum og eins ef eitthvað eyðileggst.

Hér eru nokkur atriði sem þarf að hafa í huga áður en lagt er af stað í Helludal:

Dvalargestir þurfa að hafa með sér:

  • Wc-pappír
  • Hreingerningarefni fyrir WC
  • Sorppoka
  • Handsápu
  • Uppþvottarlög
  • Handklæði
  • Viskastykki
  • Tuskur
  • Sængurver, lök, koddaver
  • Skúringartusku til að skúra með (það er þvegill og fata til staðar).

Við komu í sumarhúsin:

Útidyrahurð er læst með lykli þannig að húni er lyft upp og haldið þannig á meðan lykli er snúið. Svalahurð er læst með snerli að innanverðu.

Til að koma heita pottinum í gagnið skal skrúfa fyrir með stöng sem er við pottinn, ýta síðan á græna takkann sem staðsettur er á veggnum á milli geymsluhurðar og wc. Þá rennur í pottinn í 3 klst. Ekki er þörf á að slökkva. ( Ef ýtt er aftur á græna takkann:  Rennsli í 3 klst í viðbót).

Rétt er að kynna sér staðsetningu reykskynjara. Eldvarnarteppi er staðsett á vegg undir eldhúsglugga og slökkvitæki er á bakvið útihurð.

Vinsamlegast kynnið ykkur notkun tækjanna og við hvaða aðstæður þau eru notuð.

Sjúkrakassi er í stóra skápnum lengst til vinstri.

Kveikt er á sjónvarpi með rofa á vegg, síðan fjarstýringu.

Gott wifi er á staðnum. Lykilorð er framan á beini sem er á hillu ofan við sófann.

Sólstólar eru í litla húsinu við Laufholt. Þar eru einnig auka gaskútar. Mikilvægt er að fara með tóma kútinn í Bjarnabúð í Reykholti og fá áfyllingu. Taka nótu og SSS greiðir til baka.

Tekið skal fram að öll meðferð elds á svæðinu er stranglega bönnuð.

Vatnsslanga er í útihúsi. Kranar eru á hlið skáps sem er fyrir aftan húsin. Eldklöppur hanga utan á litlu geymslunni.

Við brottför – frágangur á sumarhúsum:

Við brottför skal þrífa vel og vandlega:

Ræstiefni eru í geymslu.

  • Ryksuga gólf í öllum rýmum
  • Ryksuga mottu í anddyri
  • Ryksuga sófa og bakvið sófa!
  • Skúra gólf í öllum rýmum og þar á meðal bakvið sófa.
  • Þrífa sturtu, vask og klósett.
  • Þrífa ísskáp, eldavél, örbylgju- og bakarofn.
  • Fjarlægja allt rusl.

Loka öllum gluggum, læsa hurðum og slökkva öll ljós.

Ganga vel frá gasgrilli, þrífa vel eftir notkun og nota yfirbreiðslu þegar grillið er orðið kalt.

Tæma pottinn með þvi að opna fyrir affallið, þrífa hann vel og festa lokið vel.

Ganga frá sólstólum. 

Ef þrifa er ábótavant áskiljum við okkur til að rukka viðkomandi gest um þrifagjald 15.000kr.

Sumarhúsin eru sameiginleg eign okkar, göngum vel um.

Skildu við húsið eins og þú villt koma að því.

  • Zasady kabiny

    Zasady kabiny

    Kilka spraw, o których warto pamiętać, przybywając i opuszczając domek letniskowy. Wynajmujący muszą zabrać ze sobą papier toaletowy, środek do czyszczenia toalet, worki na śmieci, mydło do rąk, myjki do naczyń, ręczniki, ściereczki, szmaty, poszwy na kołdry, prześcieradła, poszewki na … Continued

  • Cabin rules

    Cabin rules

    Starfsmannafélag SS We hope you enjoy your stay here. Please let us know if something is wrong or needs improvement. Please note prior to arrival: Guests must bring: Please note at arrival: Do not start any fire in the area. … Continued

  • Sumarbústaðareglur

    Sumarbústaðareglur

    Við vonum að þú og þínir eigið ánægjulega dvöl í Helludal. Vinsamlegast látið starfsmannfélagið vita ef eitthvað má betur fara í húsunum og eins ef eitthvað eyðileggst. Hér eru nokkur atriði sem þarf að hafa í huga áður en lagt … Continued

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *